Jólaös og annað rugl
Ég verð aðeins að fá að röfla inni á mínu eigin bloggi. Það er ekki búið að lengja opnunartímana og ég er strax búin að fá nóg, fólk eitthvað óvenju stressað og eipar á mann ef það þarf að bíða í 2 mínútur í röð ég meina hvað er í gangi eru ekki öll dýrin í skóginum vinir???jahh maður spyr sig .... minnið mig á það næstu jól að finna mér aðra vinnu sem felst frekar í því að eiga nánast engin samskipti við fólk Fór út á lífið sem er nú ekki frá sögu færandi nema fór með Bobby í pulsupartý og enduðum við algjörlega á perunni, skelltum okkur fyrst á rex, ekkert nema hommar og gamlir perrar þar svo við drifum okkur á pravda og áttum dansgólfið tókum smá dirty dancing þar meðan herra hlírabolur lá dauður fram á barborðið. Enduðum svo kvöldið fyrir framan einhvern samlokubar þar sem við fórum með okkar vikulega standup show mæli eindregið með því (ef þið eruð vel í glasi) því við getum verið svaðalega fyndin . Í gær fóru allir úr vinnunni á jólahlaðborð á argentína steikhús og áttum kósý kvöld saman var mikið að spá í að fá mér vinnu þarna yfir jólin svo ég gæti étið á þessu hlaðborði alla daga úff þetta var sérdeilis gott. jæja ætla að halda áfram að þrífa over ´n out K
